Posts filed under 'MMS'
Takk Fyrir
Just want to take the opprtunity to thank averyone again who contributed to the baby-sam gift certificate! Sölvi was so happy when he found out he could pick out so much stuff
Thanks you all!!
3 comments nóvember 26, 2007
Social Networking Sites – Netsamfélög
Hvernig væri að fá smá umræðu hérna á svæðinu okkar?
Hvaða skoðun hafið þið á þessum “Social Networking Sites” (þýðingar óskað… Netsamfélög?) sem að sigla á öldum Web 2.0 bylgjunar þessa dagana?
Í dag í Mogganum var grein sem var greinilega skrifuð af einhverjum afskaplega hrifnum af Facebook. Hverjar eru ykkar hugmyndir um svona samfélög á netinu? Eru þessi tónlista “uppgötvanir” hype eða eitthvað sem að ristir eitthvað dýpra.
Ég veit að mörg ykkar hafa accounta á nokkrum þessara samfélaga. Hver er ykkar upplifun? Hvaða svæði eruð þið að nota? Hafið þið komist í einhver “sambönd”? Eru þessi “sambönd” sem að menn segjast vera að byggja á eitthvað sem að menn græða virkilega á? Endilega segið ykkar skoðun og reynum að fá einhverja umræðu hérna á svæðinu.
Netsamfélög – Listi
Bætið við listann eftir minni
3 comments júní 11, 2007
Bekkjarprófílar
Eigum við að skella inn bekkjarkynningunni sem við gerðum í forritun? Svo þurfum við líka að finna tíma til að fara að sjá 300
Anna
Gústi
Begga
Davíð
Egill (Skrollið)
Eiríkur
Gugga
Gummi
Dóri
Hjalli
Jenni
Robert
8 comments mars 14, 2007
Hugsanlegar smáskilgreiningar á framlengdum skilafrestum
Hvaða skilgreiningar eiga hér við?
Veljið eins margar skilgreiningar og þið viljið.
Eru famlengdir skilafrestir…
a) …óréttlæti í garð samviskusamlegra nemenda?
b) …verknaður undangefinna kennara?
c) …atvik sem aðeins eiga sér stað í óframsæknum skólum?
d) …orsök sívæladi nemenda?
e) …óréttlæti sem á ekki að eiga sér stað?
f) …sönnun á að slakari nemendur fái sínu framgengt?
g) …ófullnægjandi vinnubrögð sem aðeins koma niður á samviskusömum nemendum?
h) …atvik sem engum gerir mein?
i) …réttlæti í garð slakari nemenda?
j) …tækifæri til að allir nemendur geti sýnt hvað í sér býr?
k) …spurningarmerki við gæði og aðferðir skólans?
l) …umbun nemenda vegna of margra verkefna?
m) …tækifæri á að góðir nemendur geti gert enn betur?
n) …eitthvað sem nemendur ættu hreinlega ekkert að hafa um að segja?
o) …tækifæri á að allir, og sérstaklega þeir duglegustu, geti fínpússað verkefni sín?
ATH: Ég tek það skýrt fram að mín persónulega skoðun kemur hér hvergi fram, og að aðeins sé um spurningar að ræða.
5 comments mars 1, 2007