Posts filed under 'MMS Keppni'
Hver er kennarinn?
Heilir og sælir samnemendur. Til hamingju með að vera byrjuð aftur í skólanum.
Enn og aftur er spurt: Hver er kennarinn?
3 comments ágúst 20, 2007
Photoshop verkefni
Laga gæðin á þessum 2 myndum, því ég nenni því ekki. Skila í myschool fyrir næsta Jóa tíma!
Svo verður flash verkefni seinna með hvað gerðist með gelluna…


6 comments nóvember 5, 2006
Hverjir…
…eru ekki að gera neitt á laugardagskvöldi nema að æfa sig í CSS???
ÉG – ÉG – ÉG !!!
Aaaa’right… og núna farin að skjóta mig í hausinn… góða helgi!
Miss B
5 comments október 28, 2006
The Official MMS Lego Character Challenge 2006
Jæja… Begga hefur hennt niður hanskanum og spurt hver komi með bjórinn?
Hér koma því flokkar og reglur keppninar.
Fyrstur kemur, fyrstur fær
1. Sá sem fyrstur býr til og póstar á síðuna fær bjór (500 ml). Hjálmar sigraði þann lið þrátt fyrir að myndin hafi verið full lítil sem að hann lagði til. Leggja skipuleggjendur keppninar til að Hjálmar taki sig á í andlitinu og geri bragabót þar á.
Líkur sækir líkan heim
2. Sá sem telst hafa skapað líkasta mynd af sér fær 1000 ml af bjór (eða slurk af rommi fyrir sjóræningjann) Þar er tekið til heildar mynd, val á bakgrunni og svo framvegis.
Börn náttúrunar
3. Sá sem telst hafa skapað bestu nektarmynd af sér fær einnig 1000 ml af bjór (eða slurk af rommi fyrir sjóræningjann) Þar er tekið til heildar mynd, val á bakgrunni og svo framvegis.
Um myndirnar
- Myndirnar eiga að vera mest að vera 400×500px á stærð, má vera aðeins minni ef að það er upplausnin sem unnið er í. Fyrir utan copy/paste og crop þá er öll önnur photoshop vinna við myndina bönnuð.
- Hjalli hefur unnið fyrsta liðinn en er hvattur til að endurposta myndina í réttri stærð.
- Sami aðili getur tekið þátt í öllum flokkunum.
- Þar sem undirritaður er dómari og styrktaraðili keppninar þá er undirritaður ekki gjaldgengur í sjálfa keppnina en áskilur sér fullan rétt á að skála við sigurvegarana að keppni lokinni.
- Einnig áskilur undirritaður sér rétt á að taka myndir og eða texta og raða þeim upp í þessari færslu eftir þörf og löngun hverju sinni. Grunnreglur keppninar standa þó óbreyttar.
- Svona til gamans þá vill undirritaður endilega hvetja keppendur til að taka sérstaklega screenshot af character ykkar með alveg hvítan bakgrunn og geyma, það gæti verið gaman seinna meir að safna öllum myndunum saman og setja þær saman í eina stóra mynd. Hvítur bakgrunnur er einna bestur af því sem við höfum úr að velja í CG gaurnum.
- Verðlaun verða veitt í næsta bekkjarpartíi.
- Enn og aftur: Myndirnar ykkar koma inn í þessa færslu hér að neðan. Ekki í comment kaflanum heldur beint hérna inn í færsluna.
Að þessu sögðu…
LET THE GAMES BEGIN!
€iríkur
Keppandi: Hjálmar Leó
Keppandi: Begga
Comment: My alter L(ego) og ég get svo svarið það að þetta er svo keimlíkt mér að mamma fattaði ekki einu sinni að þetta væri legó kall… Ég á meira að segja mjög líka ljósmynd þess til sönnunar….
(og já ég veit að hún er 75px of breið en það var ekki hjá því komist… svo fuck it!)
Keppandi: Anna Rut
Keppandi: Guðbjörg O.K.
Comment: Hérna kemur hún…..er þetta ekki verðlaunagripur, mér finnst það. Kveðja Gugga.
Keppandi (og þó ekki): €iríkur
Keppandi: Guðmundur

Keppandi: Egill
Keppandi: Jenni

2 comments október 26, 2006











