Archive for desember, 2006
Qui?
Eins og góðu nördi sæmi er ég að gera html síðu í jólafríinu mínu (í stað þess að æfa mig í flashi eins og ég ætti að gera, en jæja…). Það pirrar mig svo svakalega að YouTube klippa sem ég er með á síðunni veldur því að síðan validate-ast ekki!! Klippan verður að vera, en hún verður auðvitað að validateast!
Svo að… kunniði að breyta YouTube kóða þannig að hann validateist?
Og annað með þetta árans YouTube… ég var að reyna að setja myndina mína inn, en hún fer alltaf öll í klessu… eru einhverjar spes stillingar sem ég veit ekki um eða?
kv,
Begga
…uhhh… ps: Kannski ég fái bara álit í leiðinni hjá sérfræðingunum ![]()
Ég er smá að vesenast með smekklegu leiðarkerfi. Vil helst ekki undirsíður til að hafa 3 tengla í viðbót. Finnst ykkur of mikið að hafa svona grófa flokkun bara alltaf eða? -> www.dobermann.name
3 comments desember 21, 2006
Guði sé lof…
… að einhver skipti um look á síðunni. Hitt var steindautt!
Add comment desember 18, 2006
sko
ég vildi bara koma því á framfæri að þótt ég sé kanski með óæskilegan hárvöxt í andliti, þá stoppar það mig ekkert frá því að skemmta mér. Og jafnvel þó ég var kýld í framan þá vil ég samt benda á the simple truth about that I came home the LAST!!! Og líka það með að ég gæti ekki hösslað svona útlítandi… já þá var það bara mitt val skilurðu, mig bara langaði ekkert að hössla sko!
Já beibý! Haldiði bara áfram að þúst… vera ekki jafn skemmtileg og égsko1
6 comments desember 17, 2006
Alvöru MMS2006 síða
jæja, nú er kominn tími á að láta reyna á lærdóminn og hanna alvöru síðu fyrir okkur ekki-lengur-nýliðana í mms. Þá er bara um að gera að gera undirbúningslista ala Gunna Gríms og er upplagt að þið bekkjarfélagarnir leggið til hvað skal vera á þessari síðu.
Augljósast er:
Blogg
einstaklingsprófílar
Fleiri tillögur takk
kv,
Dóri
3 comments desember 15, 2006
LOKAVERKEFNI
Nú ættu allri að vera búnir að lokaverkefnin.
Endilega setjið hlekkjið á verkefnin hérna. Svo er bara eins og venjulega málið að gagnrýna og hrósa eftir þörfum.
* Anna Rut Guðmundsdóttir
* Ágúst Freyr Kristinsson
* Begga
- Úrvalsdeild HRFÍ
- Flash – MMS2006 (2.65 MB)
* Davíð Einar Sigþórsson
* Egill Már Arnarsson
* €iríkur
- Vefsíða XHTML Fyrir Hálfvita
- Flash – Thaumatrope (6.14 MB)
* Guðbjörg Olga Kristbjörnsdóttir
* Guðmundur Þór Jónsson
* Halldór Örn Guðnason
- Dojopan Animation
- heimasíða Pan
* Helga Guðrún Gunnarsdóttir
* Hjálmar Leó Einarsson
* Ívar Örn Leifsson
* Jens Júlíusson
* Robert van Spanje
1 comment desember 13, 2006
Jaaaaaaaahú!!!
Til hammó með próflokin elsku dúfurnar mínar! Allir búnir að standa sig vel, heldur betur.
Ég pantaði borð fyrir þá sem vildu vera memm í matnum á laugardaginn kl. 7 á Horninu.
Hlakka til að sjá ykkur
kv.
Jóla-Begga
1 comment desember 13, 2006
Baaaaallið…
Hey kids.
Hvernig er það, hverjir eru bókað að fara á skrallið um næstu helgi? Held það sé bókað með mig, Guggu, Önnu og Jenna… Koma ekki fleiri frá okkur humm ha? Strákar, ætliði að láta stelpurnar vera í meirihlutanum enn einu sinni??
Við Anna vorum að pæla í því hvort það væri sniðugt að hittast kannski um 7 og fá okkur smá í gogginn saman fyrir djammið og vera þá samferða niðureftir. Held það væri nú skemmtilegra að fara samfó með ykkur en að mæta á undan öllum… Hvað segiði?
kv.
Begga
6 comments desember 9, 2006
Hei, tékkið út stelpuna til vinstri
5 comments desember 5, 2006
